Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar og Guðfræðistofnun Háskóla Íslands, í samvinnu við samráðsvettvanginn Faith for Nature, efna til málþingsins Öll á sama báti – Loftslagskreppan og aðgerðir í þágu framtíðarinnar. Þingið verður haldið í fyrirlestrasal Þjóðminjasafnsins 29. október 2021 kl. 13:30–15:30.

Frú Vigdís Finnbogadóttir, fyrrverandi forseti Íslands, er heiðursgestur málþingsins.

Dagskrá:

Halldór Reynisson verkefnisstjóri: Lotfslagsmál, börnin og framtíðin.

Erindi:

Halldór Þorgeirsson, fulltrúi Andlegs þjóðarráðs bahá‘ía á Íslandi. Trú á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.

Halldór Björnsson, hópstjóri veðurs og loftslags hjá Veðurstofunni. Kynning á nýjustu skýrslu IPCC um loftslagsbreytingar.

Guðfinna Th. Aðalgeirsdóttir, prófessor við Jarðvísindadeild HÍ. Nánar um IPCC skýrsluna: Hörfun jökla og hækkun sjávarstöðu eru afleiðingar loftslagsbreytinga af mannavöldum

Örinnlegg:

Tryggvi Felixson, formaður Landverndar.
Hjördís Jónsdóttir, stofnandi Skógræktarfélagsins Ungviður.
Hilmar Örn Hilmarsson allsherjargoði.
Evlalía Kolbrún Ágústsdóttir, fulltrúi frá Ungum umhverfissinnum.
Axel Árnason Njarðvík í umhverfishópi Þjóðkirkjunnar.
Áróra Árnadóttir, nýdoktor við Umhverfis- og byggingarverkfræðideild Háskóla Íslands.
Gunnar Hersveinn, athafnastjóri hjá Siðmennt.

Málþingsstjóri: Arnfríður Guðmundsdóttir, prófessor í Guðfræði- og trúarbragðafræðum við Háskóla Íslands.