Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar efnir til málþings um réttlæti, stríð og frið föstudaginn 13. janúar.

Yfirskriftin er „Réttlátt stríð – og friður. Nýjar skilgreiningar á öryggi og ógnunum samtímans.“

Málshefjendur verða dr. Sólveig Anna Bóasdóttir og dr. Magnús Þorkell Bernharðsson. Erindi Sólveigar Önnu ber yfirskriftina „Réttlátur friður“ og erindi Magnúsar Þorkels „Ný stríð, nýr veruleiki. Átök 21. aldar.“

Fundarstjóri er dr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir. Gert verður ráð fyrir fyrirspurnum og umræðum.

Málþingið verður haldið í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins og efnið er bæði athyglisvert og knýjandi. Það hefst klukkan 14.00 og mun standa til 15.30.

Dr. Sólveig Anna Bóasdóttir, prófessor

Dr. Magnús Þorkell Bernharðsson, prófessor

Dr. Steinunn Arnþrúður Björnsdóttir, prestur