Þjóðminjasafnið

Stofnun dr. Sigurbjörns Einarssonar efndi til málþings föstudaginn 22. janúar 2016 klukkan 14:00-16:00 í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafns Íslands um stöðu kristinna í Mið-Austurlöndum.

Fyrirlesarar:

Magnús Þorkell Bernharðsson: Endalok kristni í Mið-Austurlöndum?

Hvers vegna flýja kristnir arabar og hvaða þýðingu það hefur að við erum að sjá fyrir endalok 2000 ára sögu kristni í Mið-Austurlöndum?

Fyrirlestur Jóhönnu Kristjónsdóttur féll niður vegna veikinda en heiti hans var: Sýrland – áður en vorið skall á. Samskipti ólíkra hópa í Sýrlandi fyrir borgarastyrjöldina.

 

Kaffihlé

 

Pallborðsumræður og fyrirspurnir, auk Magnúsar Þorkels Bernharðssonar tóku þátt:

Guðrún Margrét Guðmundsdóttir mannfræðingur, sem flutti stuttan fyrirlestur um stöðu mannréttinda út frá stöðu kvenna.

Sveinn Guðmarsson fréttamaður, sem flutti fyrirlestur um málefnið.

Fundarstjóri: Dr. Gunnlaugur Andreas Jónsson prófessor.

Aðgangur var ókeypis en áhugasamir voru beðnir um að skrá sig á heimasíðu Stofnunar dr. Sigurbjörns: https://www.stofnunsigurbjorns.is/

Erindi og frekara efni verður sett inn á þessa síðu þegar það berst.